
Hvað gerir Barcelona gegn í fyrsta heimaleiknum á nýjum Camp Nou? Nær Athletic Club að skemma partýið? Mikil eftirvænting hefur verið eftir þessum fyrsta heimaleik en framkvæmdir á heimavelli Barcelona hafa tafist gríðarlega. Það má því með sanni segja að kl. 15:15 á laugardag verði söguleg stund en þá verður leikur Barcelona og Athletic Club flautaður á.
Á sunnudag fer Real Madrid í heimsókn til Elche og ef sagan er einhver vísbending þá eru þar þægileg 3 stig í boði fyrir Madrídarbúa. Kylian Mbappe er með 13 mörk og 2 stoðsendingar í 12 leikjum og eitthvað segir okkur að það bætist við þessa tölfræði um helgina.
Real Sociedad byrjuðu tímabilið brösuglega en eru ósigraðir í síðustu 5 leikjum í deild og bikar. Það styttist í að Orri Steinn snúi aftur eftir meiðsli sem hafa haldið honum frá vellinum síðan í lok ágúst.

